Umferðarslys á Þrengslavegi

mbl.is/​Hari

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar í morgun. Þrír til viðbótar hlutu minni háttar meiðsl.

Unnið er á vettvangi og eru vegfarendur beðnir að taka tillit til þess. Umferð er hleypt fram hjá vettvangi eins og hægt er, segir í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert