Hangir þurr víða

Útlit er fyrir hægan vind á landinu í dag. Það ætti að verða þurrt nokkuð víða en þó ber að nefna að úrkomusvæði lónar yfir syðsta hluta landsins og gefur einhverja rigningu eða slyddu með köflum á þeim slóðum.

Seint í dag nálgast lægð úr suðvestri og það bætir í vind og úrkomu. Í kvöld og nótt er útlit fyrir strekking eða allhvassan vind og talsverða rigningu, en slyddu eða snjókomu um landið norðanvert. 

Á morgun blæs vindur af ýmsum áttum og víða má búast við úrkomu, hann ætti þó að hanga þurr að mestu austanlands. Annað kvöld verður áttin síðan orðin norðlæg og eru horfur á að norðanátt verði ríkjandi á fimmtudag og föstudag með kólnandi veðri og frystir á endanum um allt land. Eins og svo oft áður fylgja él norðanáttinni og verða þau einkum bundin við norðanvert landið, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Hæg breytileg átt í dag og þurrt, en rigning eða slydda með köflum sunnanlands. Bætir í vind og úrkomu seint í dag. Strekkingur eða allhvass vindur í kvöld og nótt og talsverð rigning, en slydda eða snjókoma um landið norðanvert. 

Suðvestan 10-18 m/s á morgun og rigning eða slydda, en norðaustlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Snýst í norðan 8-13 annað kvöld með éljum, en rofar til sunnanlands. 
Hiti lengst af kringum frostmark um landið norðanvert, en hiti 1 til 5 stig sunnan til og hlýnar þar í kvöld. Fer kólnandi víða um land annað kvöld.

Á miðvikudag:

Suðvestan 10-18 m/s og rigning eða slydda, en norðaustlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Snýst í norðan 8-13 undir kvöld með éljum, en rofar til sunnanlands. Kólnandi veður, hiti um og yfir frostmarki um kvöldið. 

Á fimmtudag:
Norðlæg átt 5-13 og él, einkum norðan til á landinu. Hiti um og undir frostmarki. 

Á föstudag:
Norðan 8-13, en 13-18 austanlands. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en bjart sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig. 

Á laugardag:
Fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður, en norðan 8-13 og lítils háttar él á norðausturhorninu framan af degi. Áfram kalt í veðri. Vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestan til á landinu um kvöldið. 

Á sunnudag:
Allhvöss sunnanátt með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. 

Á mánudag:
Útlit fyrir austan- og suðaustanátt með dálítilli rigningu, en þurrt norðanlands. Hiti 2 til 7 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert