Lét greipar sópa í fríhöfninni

Erlendur karlmaður var á föstudaginn staðinn að því að stela fjórtán kartonum af sígarettum úr fríhafnarverslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hafði keypt sér flugmiða til London en fór aldrei út úr flugstöðinni heldur lét greipar sópa í fríhöfninni og ætlaði síðan að yfirgefa hana.

Í skýrslutöku hjá lögreglunni á Suðurnesjum játaði hann að hann hefði aldrei ætlað að fara um borð í flugvélina heldur komast inn í flugstöðina til að stela sígarettukartonum úr fríhöfninni á annarri hæð, að því er lögreglan greinir frá.

Maðurinn var vistaður í fangageymslu og tekin ákvörðun um að setja hann síðan í tilkynningarskyldu til 14. desember. Hann skal tilkynna sig til lögreglu þrisvar í viku hverri á umræddu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert