Braust inn á hótel í Vesturbænum

mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu  barst tilkynning undir miðnætti í gær um einstakling sem hafði brotist inn á hótel í vesturborginni og haft þaðan á brott með sér bæði áfengi og lausafé.

Var sá sem það hafði gert handtekinn nokkru síðar og vistaður í fangageymslum lögreglu í nótt.

Þá barst lögreglu tilkynning um eittleytið í nótt vegna einstaklings sem hafði lamið dyravörð á skemmtistað í Breiðholtinu.

Meiðsli dyravarðarins reyndust ekki alvarleg og lagði hann ekki fram kæru vegna málsins, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert