Jafnréttismál rædd á kvennafrídegi

Katrín Jakobsdóttir og Sigríður Andersen sjást hér fremst. Fyrir aftan …
Katrín Jakobsdóttir og Sigríður Andersen sjást hér fremst. Fyrir aftan þær eru Svandís Svavarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hélt fund í ráðherranefnd um jafnréttismál ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafnréttismálaráðherra, Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra og embættismönnum, á kvennafrídeginum í dag.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

„Við fórum yfir mörg brýn og mikilvæg mál á fundinum. Fyrir liggur að margt er enn óunnið á sviði jafnréttismála innan samfélagsins og #églíka byltingin hefur svo sannarlega vakið okkur til umhugsunar um það. Mér finnst afar mikilvægt að minna á það á kvennafrídeginum en ekki síður alla hina daga ársins líka og það mun þessi ríkisstjórn gera,“ segir Katrín í tilkynningunni. 

Fram kemur, að kynnt hafi verið drög að áherslum stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali á fundinum en meðal annars sé gert ráð fyrir vitundarvakningu um mansal og hvernig komið verði í veg fyrir hagnýtingu á vinnandi fólki, greiningu á mögulegum þolendum mansals og aðstoð og vernd í þágu mögulegra þolenda mansals. Gert sé ráð fyrir að samráð hefjist á næstu vikum við fjölda hagsmunaaðila um aðgerðir gegn mansali.

Þá var ákveðið að hefja vinnu við samræmda og heildstæða stefnu um forvarnir og fræðslu sem hafa það markmið að útrýma kynferðislegu ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og öðru kynbundnu ofbeldi. Gert er ráð fyrir því að sjónum verði einkum beint að menntakerfinu og íþróttastarfi í því verkefni auk þess sem markmiðið er að efla vitund og þekkingu á eðli og afleiðingum ofbeldis og áreitni innan samfélagsins í heild. Víðtækt samráð verði m.a. haft við frjáls félagasamtök sem hafi unnið mikið starf á þágu forvarna og fræðslu innan samfélagsins í þeirri vinnu sem framundan er. 

Jafnframt fjallaði ráðherranefndin um áætlun um kynjaða fjárlagagerð frá 2019 til 2023 og vakin var athygli á ýmsum verkefnum sem hefur verið bætt úr í ljósi greiningar á grundvelli kynjaðrar fjárlagagerðar. Þá var farið yfir stöðu jafnlaunavottunar á vettvangi hins opinbera og á einkamarkaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert