Borgin greiðir afturvirkar húsaleigubætur

520 leigjendur hjá Brynju, hússnæðissjóði ÖBÍ fá greiddar afturvirkar húsaleigubætur …
520 leigjendur hjá Brynju, hússnæðissjóði ÖBÍ fá greiddar afturvirkar húsaleigubætur í nóvember. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Borgarráð samþykkti í dag hækkun á fjárhagsáætlun velferðarsviðs um 486 milljónir króna vegna afturvirkra greiðslna sérstakra húsaleigubóta, ásamt dráttarvöxtum, til leigjenda hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalags Íslands. 520 einstaklingar eiga rétt á afturvirkri greiðslu húsaleigubóta.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að þessi ákvörðun sé tekin eftir skoðun og greiningu velferðarsviðs á rétti leigjenda til greiðslna í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í júní árið 2016.

Kona sem leigði hjá Brynju og er öryrki sótti rétt sinn til húsaleigubóta upp í Hæstarétt, en borgin synjaði konunni um húsaleigubætur þar sem hún var ekki leigjandi á almennum leigumarkaði eða í leiguíbúð á vegum Félagsbústaða.

„Á fundi borgarráðs þann 3. maí 2018 var samþykkt tillaga borgarstjóra um að fela velferðarsviði Reykjavíkurborgar að afgreiða kröfur um greiðslu sérstakra húsaleigubóta frá leigjendum Brynju án tillits til þess hvort umsókn hafi legið fyrir,“ segir í tilkynningu borgarinnar, en velferðarsviði var einnig falið að greiða dráttarvexti til þeirra sem eiga rétt á greiðslum sérstakra húsaleigubóta aftur í tímann.

Stefnt að greiðslu um miðjan nóvember

Vinna velferðarsviðs leiddi í ljós að um 520 einstaklingar eigi rétt á afturvirkri greiðslu sérstakra húsaleigubóta og í byrjun nóvember munu leigjendur hjá Brynju fá bréf þar sem fram kemur hvort viðkomandi eigi rétt á greiðslu sérstakra húsaleigubóta og dráttarvaxta aftur í tímann, ásamt útreikningi. Stefnt er að því að greiðsla fari fram um miðjan nóvember, en borgin hefur verið gagnrýnd af Öryrkjabandalaginu fyrir að draga lappirnar í þessu máli eftir að dómur Hæstaréttar féll árið 2016.

Heildargreiðslur frá borginni nema 486 milljónum króna sem fyrr segir, 228 milljónir eru vegna greiðslu afturvirkra sérstakra húsaleigubóta og 175 milljónir vegna greiðslu dráttarvaxta.

„Áætlað er að kostnaður vegna sérstaks húsnæðisstuðnings verði allt að 66 milljónir en hluti þeirra sem eiga rétt á afturvirkum greiðslum sérstakra húsaleigubóta á einnig rétt á  sérstökum húsnæðisstuðningi samkvæmt lögum og reglum sem tóku gildi 1. janúar 2017 og mun útreikningur vegna þeirra greiðslna fara fram í kjölfarið,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Forseti borgarstjórnar fagnar málalokum

Í fréttatilkynningu er haft eftir Dóru Björt Guðjónsdóttir, oddvita Pírata og formanni borgarstjórnar, að hún fagni því innilega að réttlætið nái hér fram að ganga og fólk fái „sinn rétt uppfylltan og það með dráttarvöxtum“.

„Hér sýnum við svart á hvítu að rétt skal vera rétt og að ekkert skal út af bera hvað það varðar. Reykjavíkurborg er metnaðarfull hvað velferðarmálin varðar og við viljum að öllum líði hér vel,“ segir Dóra Björt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert