Snerti stúlku á ósæmilegan hátt

Björn Bragi Arnarsson.
Björn Bragi Arnarsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Seint aðfaranótt sunnudags hitti ég stúlku sem ég þekkti ekki. Við áttum stutt samskipti og ég snerti hana á ósæmilegan hátt. Af þessu var tekið myndband sem er nú í dreifingu.“

Þetta segir skemmtikrafturinn Björn Bragi Arnarsson í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni vegna myndbands sem dreift hefur verið á netinu þar sem hann sést snerta umrædda stúlku. „Þessi hegðun mín var algjörlega óásættanleg og ég er miður mín yfir því að hafa hagað mér með þessum hætti. Það að ég hafi verið undir áhrifum áfengis er engin afsökun.“

Björn Bragi segist hafa sett sig í samband við stúlkuna og fjölskyldu hennar í gærkvöldi. „Ég bað hana einlægrar afsökunar á framkomu minni. Ég gekk of langt og tek fulla ábyrgð á þessu atviki.“ Hann hafi átt gott samtal við móður stúlkunnar sem hafi sagt að fjölmiðlar hefðu bæði reynt að ná sambandi við hana og dóttur hennar.

„Hún vildi koma á framfæri ósk um að þau yrðu látin í friði. Það vil ég líka gera. Ég ber alla ábyrgð hér.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert