Eldur í einbýlishúsi á Selfossi

Slökkvistarf er í fullum gangi.
Slökkvistarf er í fullum gangi. Ljósmynd/Aðsend

Slökkvistarf er í fullum gangi vegna elds sem kviknaði í einbýlishúsi á Selfossi. Tilkynning um eldinn barst laust fyrir klukkan 16.

Að sögn Odds Árnasonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, er um mikinn eld að ræða en hann gat ekki gefið meiri upplýsingar að svo stöddu.

Eldurinn logar í húsi við Kirkjuveg. Á Facebook-síðu Brunavarna Árnessýslu eru vegfarendur beðnir um að halda sig frá vettvangi til að trufla ekki störf viðbragðsaðila.

Uppfært kl. 17.47:

Lögreglan á Suðurlandi biður nágranna um að loka gluggum hjá sér til að fá ekki eitraðar gufur inn í hús.

Fólk er beðið að leita til Heilbrigðisstofnanna ef það finnur fyrir öndunaróþægindum. Það er einnig beðið um að leita til tryggingarfélaga ef það telur húsnæði sitt hafa orðið fyrir reykskemmdum.

Mikill reykur hefur stigið upp vegna eldvoðans.
Mikill reykur hefur stigið upp vegna eldvoðans. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert