Aðalmeðferð í máli Júlíusar 29. nóvember

Júlíus Vífill Ingvarsson í Héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu málsins í …
Júlíus Vífill Ingvarsson í Héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu málsins í september. mbl.is/Valli

Aðalmeðferð í peningaþvættismáli Júlíusar Vífils Ingvarssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, fer fram 29. nóvember næstkomandi. Þetta kom fram við fyrirtöku í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag.

Hörður Felix Harðarson, verjandi Júlíusar Vífils, lagði fram greinargerð fyrir hönd umbjóðanda síns, sem ákærður er fyrir að hafa geymt á bilinu 131-146 milljónir króna á erlendum bankareikningum, en hluti fjármunanna er sagður ávinningur refsiverðra brota.

Í ákæru segir að við rannsókn málsins hafi Júlíus viðurkennt að fjármagnið væru tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts og því ekki greitt af þeim útsvar né tekjuskatt. Þar seg­ir þó einnig að Júlí­us hafi neitað að gera nán­ari grein fyr­ir því hvenær tekn­anna var aflað og því sé ekki hægt að finna út ná­kvæm­an ávinn­ing hans, en ákæruvaldið telur ávinning Júlísar Vífils á bilinu 49-57 milljónir króna.

Júlíus Vífill sagðist saklaus af peningaþvættisákærunni við þingfestingu málsins í byrjun septembermánaðar og jafnframt sagði hann við fjölmiðla þá að hann væri viss um að hafa sigur í málinu.

Mögulegt að engin vitni verði kölluð til

mbl.is óskaði eftir því að fá greinargerð verjandans afhenta í dag, en þeirri beiðni var hafnað að ósk Júlíusar Vífils.

Fram kom í samræðum Björns Þorvaldssonar héraðssaksóknara og Harðar verjanda í dómsal í dag að hugsanlega yrði ekki þörf á því að kalla nein vitni til skýrslutöku við aðalmeðferð málsins, nema þá að sjálfsögðu Júlíus Vífil sjálfan. Það mun þó ráðast síðar.

Júlíus Vífill og verjandi hans, Hörður Felix Harðarson.
Júlíus Vífill og verjandi hans, Hörður Felix Harðarson. mbl.is/Valli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert