„Ætlaði að stappa í hann stálinu“

„Ég ætlaði að stappa í hann stálinu,“ segir Kjartan Björnsson rakari, en hann kom fljótt á vettvang í eldsvoðanum á Selfossi í gær. Kjartan ólst upp í húsinu á móti og húsráðandi í húsinu sem brann er æskuvinur hans og ræddust þeir stuttlega við. Hann segir hafa verið dapurlegt að koma að húsinu í ljósum logum. 

Í myndskeiðinu er rætt ítarlega við Kjartan sem segir að saga þeirra sem eiga hlut að máli sé bæði „flókin og sorgleg“.

Einnig er rætt við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra á Selfossi, en hann segir málið snerta marga í bæjarfélaginu og á skrifstofu bæjarfélagsins með beinum hætti. Það hafi því djúpstæð áhrif á samfélagið á Selfossi. 

Kjartan Björnsson ólst upp á Kirkjuvegi og kom fljótt á …
Kjartan Björnsson ólst upp á Kirkjuvegi og kom fljótt á vettvang í eldsvoðanum í gær. mbl.is/Hallur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert