Kínverjar og Indverjar leita starfa hér

Margir erlendir ríkisborgarar hafa flutt til Íslands síðustu ár.
Margir erlendir ríkisborgarar hafa flutt til Íslands síðustu ár. mbl.is/​Hari

Arthúr Vilhelm Jóhannesson, framkvæmdastjóri Elju starfsmannaþjónustu, segir fyrirtækið hafa fengið margar umsóknir frá Indlandi og Kína og fleiri ríkjum varðandi störf á Íslandi.

„Sem við auðvitað höfnum. Hér er verið að gera hlutina rétt, þannig að sómi sé að fyrir notendafyrirtækið, Elju og starfsmanninn,“ segir Arthúr Vilhelm og bendir á að fyrirtækið taki eingöngu við starfsfólki frá EES-svæðinu. Hann segir eftirspurnina eftir erlendu starfsfólki á næsta ári „líta nokkuð vel út“.

„Það er auðvitað að hægjast á hagkerfinu. Við erum núna í sambandi við okkar viðskiptavini, til dæmis varðandi næsta sumar. Það þarf að fara að huga að því. Við merkjum ekki að það sé að verða neitt stopp.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert