Nöfn þeirra sem létust í eldsvoðanum

Kristrún og Guðmundur létust í eldsvoðanum.
Kristrún og Guðmundur létust í eldsvoðanum. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi

Konan sem lést í brunanum á Kirkjuvegi á Selfossi í gær hét Kristrún Sæbjörnsdóttir. Hún var fædd 1. október 1971 og var búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir  sig þrjá syni.  Kristrún var gestkomandi í húsinu.  

Karlmaðurinn sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson. Hann var fæddur 29. nóvember 1969 búsettur á Selfossi, ókvæntur og barnlaus.  Hann var einnig gestkomandi í húsinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Aðstandendur færa viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert