Ræða áhrif riftunar á þjóðaröryggi Íslands

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar. mbl.is/hari

Afvopnunarsamningur um meðaldrægar kjarnaflaugar verður til umfjöllunar á fundi utanríkismálanefndar Alþingis sem kemur saman klukkan eitt í dag. Þar munu fulltrúar utanríkisráðuneytisins fara yfir áhrif á þjóðaröryggi Íslands, komi til þess að svokölluðum INF-afvopnunarsamningi verði rift af hálfu Bandaríkjanna, líkt og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að gera. 

Smári McCarthy, þingmaður Pírata og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, óskaði eftir að fá kynningu á samningnum vegna fregna að fyrirætlunum Trumps um að rifta samkomulaginu við Rússa, sem legg­ur bann við meðallang­dræg­um eld­flaug­um. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að um hefðbundinn upplýsingafund sé að ræða þar sem fulltrúar frá utanríkisráðuneytinu munu kynna samninginn og möguleg áhrif riftunar á honum. 

„Við munum fá kynningu á áhrifum þessa á þjóðaröryggi Íslands og stöðu annarra NATO-ríkja gagnvart þessum yfirlýsingum,“ segir Áslaug.  

Í vikunni hefur ráðstefna Atlantshafsbandalagsins um afvopnun og takmörkun á útbreiðslu gereyðingavopna staðið yfir hér á landi. Henni lauk í gær og segir Áslaug mögulegt að nefndarmenn muni á fundi sínum fá upplýsingar sem koma af þeirri ráðstefnu. „Þær munu eflaust gagnast vel í upplýsingagjöfinni,“ segir Áslaug.

Á fundinum verður einnig rætt um breytta framkvæmd á afgreiðslu Schengen vegabréfsáritana og mun fjárlaganefnd einnig sitja þann hluta fundarins. Þá er kynning frá þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins einnig á dagskrá fundarins.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert