Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði nú í kvöld að karlmaður fæddur 1965 skuli sæta gæsluvarðhaldi í eina viku að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Krafan var byggð á rannsóknarhagsmunum vegna rannsóknar á brunanum að Kirkjuvegi 18 á Selfossi í gær.
Sömuleiðis úrskurðaði dómurinn að kona fædd 1973 skuli sæta gæsluvarðhaldi í eina viku vegna sama máls, einnig á grundvelli fyrirliggjandi rannsóknarhagsmuna.