Gæsluvarðhald framlengt um 4 vikur

Maðurinn á leið í dómsal í Héraðsdómi Reykjaness í lok …
Maðurinn á leið í dómsal í Héraðsdómi Reykjaness í lok síðasta mánaðar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gæsluvarðhald yfir hjónum sem eru grunuð um gróf kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 28. nóvember.

Fyrirtaka í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þar var ákveðið að fresta málinu til 4. desember vegna frekari gagnaöflunar af hálfu verjenda, að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur varahéraðssaksóknara. Þing­hald er lokað eins og van­inn er í kyn­ferðis­brota­mál­um.

Við fyrirtökuna þann dag stendur til að ákveða hvenær aðalmeðferð hefst. Hjónin hafa játað brot sín að hluta en Kolbrún gat ekki gefið frekari upplýsingar um málið. 

Konan á leið í dómsalinn.
Konan á leið í dómsalinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

For­saga máls­ins er sú að stjúp­dótt­ir­in kom á lög­reglu­stöðina á Suður­nesj­um og lagði fram kæru á hend­ur mann­in­um og móður sinni. Við yf­ir­heyrslu í júlí játaði fólkið að hafa framið brot­in. Kon­an sætti gæslu­v­arðhaldi en var síðan sleppt þar sem hlut­ur manns­ins í brot­inu var tal­inn meiri.

Eft­ir að ákæra var gef­in út í mál­inu 1. októ­ber var kon­an aft­ur úr­sk­urðuð í gæslu­v­arðhald. Kom þá fram að héraðssak­sókn­ari teldi að ef kon­an hefði gerst sek um jafnal­var­leg brot og henni væru gef­in að sök myndi það valda hneyksl­un og særa rétt­ar­vit­und al­menn­ings gengi hún laus.

Fólkið hef­ur viður­kennt að hafa beitt dótt­ur kon­unn­ar grófu of­beldi og enn frem­ur að hafa gert það á meðan önn­ur dótt­ir þeirra horfði á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert