Hrannar til ADHD-samtakanna

Hrannar. B. Arnarsson.
Hrannar. B. Arnarsson. Ljósmynd/Aðsend

Hrannar Björn Arnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu og enn fremur að Hrannar hafi verið valinn úr stórum hópi umsækjenda en ráðningarferlið hafi verið í höndum Intellecta.

Fram kemur í fréttatilkynningunni að Hrannar hafi undanfarin fimm ár starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks jafnaðarmanna í Norðurlandaráði, en áður hafi hann starfað sem aðstoðarmaður ráðherra, borgarfulltrúi, sölu-, þjónustu- og markaðsstjóri auk þess að hafa stofnað og stýrt eigin fyrirtækjum um árabil. Hann hafi MBA-gráðu frá Háskóla Íslands.

ADHD-samtökin, sem fagna 30 ára starfsafmæli um þessar mundir, eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir sem og fjölskyldum þeirra en tæplega 3.000 fjölskyldur eiga aðild að samtökunum. ADHD-samtökin eru aðilar að Öryrkjabandalagi Íslands og einn fjögurra stofnaðila Ráðgjafamiðstöðvarinnar Sjónarhóls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert