Kona var handtekin í íbúð í Hafnarfirði í morgun og fimm börn á heimilinu færð í umsjá barnaverndaryfirvalda. Einhver vafi virðist leika um tengsl konunnar og barnanna, en fólkið er frá Afganistan.
Samkvæmt Skúla Jónssyni, aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, var konan yfirheyrð síðdegis í dag og sleppt úr haldi í kjölfarið. Fréttablaðið greindi fyrst frá handtöku konunnar í dag og segir börnin á aldrinum 10-17 ára gömul.
Skúli segir í samtali við mbl.is að lögregla hafi ekki farið á svæðið með það að markmiði að handtaka konuna, en aðstæður á vettvangi og einhverjir munir sem að fundust hafi leitt til handtöku hennar.
Samkvæmt svörum Skúla leikur vafi á því hver tengsl konunnar við börnin fimm eru. Hann staðfestir aðspurður að lífsýni úr fólkinu verði rannsökuð til að varpa ljósi á tengsl þeirra. Sú rannsókn mun taka einhverjar vikur.
Barnaverndaryfirvöld báðu lögreglu um að koma að málinu. Skúli staðfestir að konan sé grunuð um brot gegn útlendingalögum, en vildi annars lítið segja um rannsókn lögreglu og vísaði á barnaverndaryfirvöld.