75.000 gestir ganga á Grábrók

Grábrókargígar voru fyrst fyrst friðlýstir sem náttúruvætti árið 1962.
Grábrókargígar voru fyrst fyrst friðlýstir sem náttúruvætti árið 1962.

Mikil umferð er um Grábrókarsvæðið, en ár er nú liðið síðan teljari var settur upp við Grábrók. Alls gengu 75.185 gestir á Grábrók samkvæmt teljaranum á tímabilinu frá 6. nóvember 2017 til 6. nóvember 2018 og svæðið því vinsæll viðkomustaður meðal ferðamanna, að því er fram kemur í frétt á vef Umhverfisstofnunar.

Haft er eftir Jóni Björnssyni hjá Umhverfisstofnun að aldrei áður hafi talning með rafrænum hætti verið framkvæmd við Grábrók. Greinilega sé hins vegar mikil umferð á svæðinu, en niðurstaðan sé þó í takt við hans tilfinningu áður en mælingar hófust.

Ýmsar upplýsingar um náttúrufyrirbærið er að finna á vef Umhverfisstofnunar. Þar segir m.a. að Grábrókargígar hafi fyrst verið friðlýstir sem náttúruvætti árið 1962.

Gígarnir séu alls þrír. Litla-Grábrók hafi þó að mestu horfið við framkvæmdir en Stóra-Grábrók rísi fagurformuð fast við þjóðveginn. Þriðji gígurinn er vestar og heitir Grábrókarfell og tilheyra gígarnir eldstöðvakerfi sem teygir sig langt vestur á Snæfellsnes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert