Alvarlegt umferðarslys í Víkurskarði

Tilkynning barst lögreglunni á Norðurlandi eystra um klukkan tvö í dag um alvarlegt umferðarslys í Víkurskarði. Þar hafði jepplingur hafnað utan vegar og oltið austan megin í skarðinu samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Ökumaðurinn, kona á sjötugsaldri, var ein í bílnum og var hún flutt með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem meiðsl hennar voru talin alvarleg.

Tildrög slyssins eru til rannsóknar en ekki liggja fyrir niðurstöður í þeim efnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert