Hestar teknir af eiganda í annað sinn

Um endurtekið brot er að ræða og skoðar Matvælastofnun nú …
Um endurtekið brot er að ræða og skoðar Matvælastofnun nú frekari aðgerðir gagnvart umráðamanni hrossanna. Myndin er úr safni. mbl.is/​Hari

Matvælastofnun tók tvær hryssur og folöld þeirra úr vörslu hestaeiganda á Suðurlandi í vikunni. Þetta er í annað skipti á hálfu ári sem sami eigandi er sviptur sömu hrossum. Ástæða vörslusviptingarinnar er ófullnægjandi aðbúnaður hrossanna.

Um folöld og mjólkandi hryssur er að ræða sem haldin voru í beitarlausu gerði þar sem ekki var tryggur aðgangur að vatni. Einnig var slysahætta í gerðinu, að því er MAST greinir frá í tilkynningu.

Um endurtekið brot er að ræða og skoðar Matvælastofnun nú frekari aðgerðir gagnvart umráðamanni hrossanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert