Húsnæðismál lykilatriði í kjaraviðræðum

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Ófeigur

Ekki verður gengið frá kjarasamningum nema húsnæðismálin verði tekin föstum tökum. Þetta kemur fram í pistli Drífu Snædal, forseta ASÍ, á heimasíðu sambandsins.

Drífa segir einnig að húsnæðis- og skattamál verði þeir málaflokkar sem settir verða á oddinn af hálfu ASÍ næstu vikur.  Sambandið fundaði um húsnæðis- og skattamál í byrjun vikunnar og þau voru einnig til umræðu á samráðsfundi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins á þriðjudaginn.

„Það vantar 8.000 íbúðir núna og skipulag til framtíðar í þessum málum þannig að markaðsaðilar geti ekki stýrt framboði hverju sinni heldur sé tekið mið af raunverulegri þörf fólks sem vantar húsnæði,“ skrifar Drífa.

Sérstök húsnæðisnefnd stofnuð innan ASÍ

Í pistlinum segir hún einnig að markaðslögmálin muni aldrei leysa húsnæðisvandann heldur sé það félagslegt mál að fólk hafi húsnæði á viðráðanlegu verði. „Auk þess er afar brýnt að tryggja hagsmuni leigjenda þannig að almenningur sé ekki ofurseldur óöruggum leigumarkaði og leigusölum sem hækka leiguna eftir hentisemi.“

Sérstök húsnæðisnefnd var stofnuð innan ASÍ á miðstjórnarfundi sambandsins á miðvikudag og mun hún vinna náið með helstu sérfræðingum sambandsins við að útfæra hugmyndir til skamms- og langs tíma. „Ég geri mér vonir um að við fáum góðan hljómgrunn meðal stjórnmálamanna og við áttum okkur öll á að hér þarf róttæka nálgun til að vinna úr neyðarástandi,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert