Tekinn á 141 km hraða

mbl.is/Hjörtur

Erlendur ferðamaður sem ók Reykjanesbrautina í vikunni mældist á 141 km hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90. Hraðaksturinn kostaði hann 210 þúsund krónur að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Lögreglan segir ennfremur að fáeinir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu, þar á meðal annar ferðamaður sem jafnframt var grunaður um ölvunarakstur en samkvæmt áfengismæli var hann undir mörkum. Þriðji ferðamaðurinn kom svo við sögu hjá lögreglu vegna ölvunaraksturs. Hann var að koma frá Reykjavík og ók áleiðis að Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar hann var stöðvaður. Honum var gert að greiða 180 þúsund í sekt þar sem mikið áfengismagn mældist í honum.

Í þremur umferðaróhöppum sem áttu sér stað í umdæminu í vikunni stungu svo tjónvaldar af frá vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert