Tvöfalda á viðmiðunarfjárhæð endurgreiðslna

Stærstur hluti þeirra fyrirtækja sem nýta sér endurgreiðslu á þróunar- …
Stærstur hluti þeirra fyrirtækja sem nýta sér endurgreiðslu á þróunar- og rannsóknakostnaði eru með veltu á bilinu 0-500 m.kr. Mynd úr safni. AFP

Lagt er til að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar verði tvöfaldaðar og hækki úr 300 milljónum kr. í 600 milljónir kr. í frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi.

Frumvarpinu er ætla að stuðla enn að enn frekari nýsköpun, að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins. Auk tvöföldunar á viðmiðunarfjárhæð endurgreiðslna er lagt til að hámark á rannsóknar- og þróunarkostnaði til viðmiðunar á frádrætti hækki úr 450 m.kr. í 900 m.kr. þegar rannsóknar- og þróunarvinna er keypt af ótengdu fyrirtæki, háskóla eða stofnun.

Verði frumvarpið að lögum án breytinga verður hámarkið 25% hærra en í Noregi, sem er með svipað kerfi og Ísland.

Er það „í samræmi við þá stefnu stjórnvalda að auka verulega stuðning við rannsóknir og tækniþróun fyrirtækja á kjörtímabilinu,“ að því er segir í fréttinni. Hækkun viðmiðunarfjárhæða sé „nauðsynlegt skref í átt að því endanlega markmiði ríkisstjórnarinnar að afnema þök á endurgreiðslur.“

Segir í fréttinni að ljóst sé að endurgreiðslurnar hafi stuðlað að mikilli grósku hjá fjölda fyrirtækja á undanförnum árum og að fjárfesting í nýsköpun, rannsóknum og þróun sé undirstaða aukinnar verðmætasköpunar, hagvaxtar og almennra framfara í íslensku samfélagi. Það sé því mikilvægt að stjórnvöld haldi stuðningi sínum áfram.

Verkefnum sem stuðla að nýsköpun og sem fá endurgreiðslur úr ríkissjóði fjölgaði milli áranna 2016-2017 úr 283 í 360, en viðmiðunarfjárhæðir vegna endurgreiðslnanna voru hækkaðar á tímabilinu. Er hækkunin einnig sögð hafa leytt til þess að umfang endurgreiðslna stórjókst.

Stærstur hluti þeirra fyrirtækja sem nýta sér endurgreiðslu á þróunar- og rannsóknakostnaði eru með veltu á bilinu 0-500 m.kr. Felur hækkun viðmiðunarfjárhæða því í sér aukinn stuðning við stærri fyrirtæki, sem efli frekari uppbyggingu sérfræðistarfa og þróun útflutningsafurða.

Enn fremur er hafin vinna við að greina hvernig best sé að haga útfærslu endurgreiðslna með það að markmiði að stuðningurinn nýtist sem best. Er í því sambandi m.a. til skoðunarmarkmið endurgreiðslna og umgjörð á mati verkefna. Gert er ráð fyrir að nánari útfærsla verði kynnt á vormánuðum 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert