Farþegi kýldi leigubílstjóra

mbl.is/​Hari

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgasvæðinu um klukkan fimm í morgun um ósáttan farþega leigubíls í Hafnarfirði sem kýlt hefði leigubílstjórann. Ekki hefur verið haft uppi á farþeganum sem kaus að leggja hendur á bílstjórann.

Skömmu síðar óskaði annar leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu vegna farþega í annarlegu ástandi sem neitaði að greiða fyrir farið. Farþeginn brást illa við afskiptum lögreglunnar og var í framhaldinu handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Þá hafði lögreglan afskipti af nokkrum ökumönnum vegna akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Var einn þeirra einnig án ökuréttinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert