Alvarlegt slys á Sæbraut

Búið er að loka Sæbraut í vesturátt frá Kringlumýrarbraut vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð um kl. 11:30.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var ekið á gangandi vegfaranda. Hann var fluttur á slysadeild. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert