Katrín fundar með Merkel í Berlín

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heldur til Þýskalands.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heldur til Þýskalands. mbl.is/​Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagsmál á vegum Süddeutsche Zeitung í Berlín á morgun. Forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín.

Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins.

Þá segir, að Katrín muni flytja ávarp ásamt Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, og Ana Brnabić, forsætisráðherra Serbíu, á ráðstefnunni.

Forsætisráðherrarnir munu einnig taka þátt í umræðum um stafrænar framfarir í Evrópu (e. Europe Digital – Three countries and Their Vision) að ávörpum loknum sem Wolfgang Krach, aðalritstjóri Süddeutsche Zeitung, stýrir. 

Þá tekur Katrín þátt í hátíðarkvöldverði þar sem Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ávarpar gesti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert