Tjónvaldur í annarlegu ástandi

mbl.is/Styrmir Kári

Ökumaður sem er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna ók á ljósastaur á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Að sögn lögreglu er ekki vitað um hvort einhver meiddist en flytja þurfti bifreiðina af vettvangi með dráttarbifreið.

Lögreglan stöðvaði för ökumanns um klukkan 20 í Kópavoginum í gærkvöldi sem talinn er hafa verið undir undir áhrifum fíkniefna og síðan var annar stöðvaður í Árbænum í nótt í sama ásigkomulagi nema hann var bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert