Grunaður um vopnalagabrot

Maður í annarlegu ástandi var handtekinn um fjögurleytið í nótt í Grafarholti en hann er grunaður um brot á vopnalögum auk fleiri lögbrota.  Maðurinn er vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um líkamsárás á veitingastað í hverfi 108. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku með áverka í andliti en árásarmaðurinn hafði forðað sér af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er vitað hver hann er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert