Tengist ekki Atlantic SuperConnection

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fram kemur í fréttatilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að rangt sé að fyrirtækið Atlantic SuperConnection hafi verið að skoða möguleika á lagningu sæstrengsins Ice-Link á milli Bretlands og Íslands sem sé á verkefnalista Evrópusambandsins.

„Hið rétta er að athugun á Ice-Link verkefninu er á vegum Landsnets og Landsvirkjunar. Fyrirtækið Atlantic SuperConnection á enga aðild að því verkefni. Einnig er rétt að árétta að verkefnalisti ESB er opinber og langt er síðan það kom fram opinberlega að Ice-Link verkefnið væri á honum,“ segir enn fremur í fréttatilkynningu ráðuneytisins.

Þáverandi ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hafi í ársbyrjun 2015 veitt leyfi fyrir að sótt yrði um að sæstrengurinn færi á listann og hafi leyfið verið veitt með fyrirvara um að í því fælist engin efnisleg afstaða stjórnvalda til verkefnisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert