420 milljónir gengu ekki út

Víkingalottó.
Víkingalottó.

Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld en í pottinum voru um 420 milljónir króna.

Tveir hlutu annan vinning og fær hvor þeirra tæpar 17 milljónir króna í vasann. Báðir miðarnir voru keyptir í Danmörku.

Hérlendis var einn með þriðja vinning og fær hann í vasann tæpar 3,7 milljónir króna. Miðinn var keyptur á lotto.is.

Enginn var með fimm jókertölur réttar í réttri röð en þrír voru með fjórar réttar í réttri röð. Hver þeirra fær 100 þúsund krónur.

Vinningstölurnar: 15-17-32-38-39-42

Víkingatalan: 7

Jókertölurnar: 6-9-2-9-3

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert