Viðvörunarkerfið fór í gang á sjúkrahúsinu á Vífilsstöðum um hálffimmleytið í dag eftir að lyfta bilaði með manneskju þar inni.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafði hún verið föst í lyftunni í 10 til 15 mínútur þegar slökkviliðið mætti á vettvang og kom henni til bjargar.