Hafa unnið að frumvarpinu í fimm ár

Þjóðleikhúsið við Hverfisgötu.
Þjóðleikhúsið við Hverfisgötu. mbl.is/Golli

Mennta- og menningarmálaráðuneytið vill að gefnu tilefni árétta að frumvarp til sviðslistalaga er enn í vinnslu innan ráðuneytisins.

Opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem hagsmunaaðilum og almenningi er frjálst að senda inn athugasemdir sínar og ábendingar, mun standa til 27. nóvember.

„Í ljós hefur komið að samráðsaðilar eru að læra á þetta breytta verklag sem nú er fylgt í samráði stjórnvalda við hagsmunaaðila og almenning. Það er mikilvægt að fá fram ábendingar og álitaefni með formlegum hætti og því er hvatt til þess að fólk kynni sér og noti samráðsgáttina. Hún er hinn formlegi vettvangur til þess að koma á framfæri sjónarmiðum varðandi stefnumótun, reglusetningu og lagafrumvörp,“ segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að unnið hafi verið að gerð frumvarps um sviðslistir í nær fimm ár. Samráðsferlið hófst í janúar þegar kynningarfundir voru boðaðir þar sem helstu hagsmunaaðilum voru kynnt drögin að frumvarpinu og þeir hvattir til að koma skriflegum athugasemdum til ráðuneytisins.

„Þegar áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 27. september sl., bárust sex umsagnir. Við vinnslu frumvarpsins var farið yfir þær athugasemdir og leiddu sumar þeirra til breytinga. Frumvarpsdrögin sjálf voru síðan kynnt í samráðsgáttinni 31. október sl.,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert