Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, íslenskan karlmann um tvítugt í farbann til 19. desember.
Maðurinn var handtekinn þar sem hann var einn á vesturleið á Suðurlandsvegi um Mýrdalssand um kl. 20 hinn 7. nóvember á vanbúinni bifreið, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Athugull lögreglumaður áttaði sig fljótlega á því að fleira vantaði upp á því maðurinn reyndist próflaus og undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreiðinni fundust tæp 6 kíló af hassi sem maðurinn kannaðist við að flytja en vildi að öðru leyti ekki skýra tilvist þeirra.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald sem átti að renna út kl. 16 á morgun en ekki þótti tilefni til að halda honum lengur vegna rannsóknarinnar og var hann því látinn laus í dag en úrskurðaður í farbann eins og áður sagði.
Áfram er unnið að rannsókn málsins, m.a. um uppruna efnanna. Lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar um gang hennar að sinni.