Staðfesta verði nýtt lögheimili

Ákvarðanir um breytt lögheimili geta haft veruleg áhrif á réttarstöðu …
Ákvarðanir um breytt lögheimili geta haft veruleg áhrif á réttarstöðu viðkomand. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Þjóðskrá hefur ákveðið að breyta verklagi við skráningu lögheimilis í tilteknum málum eftir fyrirspurn frá umboðsmanni Alþingis, en tilefni athugunar umboðsmanns var mál manns hvers lögheimili hafði verið flutt til annars lands að honum forspurðum.

Í umfjöllun umboðsmanns Alþingis um málið segir að ákvarðanir um breytt lögheimili geti haft veruleg áhrif á réttarstöðu viðkomandi, en í svari frá Þjóðskrá sagði að lögheimili mannsins hefði verið breytt í kjölfar staðfestingar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu á samkomulagi um forsjá og meðlag. Þar hafi komið fram að maðurinn byggi erlendis og að lögheimilinu hafi því verið breytt í samræmi við vinnureglur.

Umboðsmaður Alþingis ákvað að kanna nánar hvernig staðið væri að meðferð mála þar sem lögheimili er breytt án þess að skýr beiðni viðkomandi liggi fyrir, þar með talið þegar breytingin er byggð á gögnum annars stjórnvalds.

Upplýst var í bréfi frá Þjóðskrá að í ljósi þessa tiltekna máls hafi verið ákveðið að breyta verklagi þegar svona hátti til. Þegar tilkynningar bærust samhliða úrlausn mála hjá sýslumanni yrði tryggt að viðkomandi staðfesti sjálfur nýtt lögheimili áður en því væri breytt hjá Þjóðskrá. Fulltrúar Þjóðskrár og sýslysmanns fóru yfir verkferilinn og greiddu úr málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert