Vissu ekki af kæru Seðlabankans í 3 ár

Makrílvinnsla í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum á síðasta …
Makrílvinnsla í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum á síðasta sumri. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson

Eftir að hafa verið í rannsókn hjá Seðlabankanum kærði bankinn framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar og stjórn fyrirtækisins til embættis Ríkislögreglustjóra árið 2011. Fyrirtækið vissi hins vegar ekki af kærunni í þrjú ár.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að gagnvart Vinnslustöðinni hafi Seðlabankinn leikið tveimur skjöldum og sýnt af sér dæmalausa hegðan. Það komi honum ekki sérstaklega á óvart að Seðlabakinn hafi goldið atlögu sinnar gegn Samherja í réttarsölum.

Nú þegar þessu máli sé lokið sjái hann að tilgangurinn hafi verið að koma höggi á sjávarútveginn í pólitískum tilgangi árið 2011 og þyrla upp moldviðri á sama tíma og veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar hafi verið kynnt, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert