Segja ráðherra fara með rangt mál

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. mbl.is/Hari

Fjármálaráðherra fullyrðir að bætur til lífeyrisþega hafi hækkað um 1,1 milljón króna á ári frá árinu 2010. Það væri hækkun sem næmi hátt í 92 þúsundum á mánuði, á hvern mann í hverjum mánuði undanfarin átta ár. Erfitt er að koma þessum upplýsingum heim og saman við þann veruleika sem öryrkjar búa við.

Þetta kemur fram á vefsíðu Öryrkjabandalagsins.

Þar segir að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra hafi verið tíðrætt um misskilning þingmanna í umræðum um framlög til öryrkja á þingi í gær. Hann hafi meðal annars sagt að bætur hafi hækkað fyrir hvern og einn bótaþega um 1,1 milljón á ári á árunum 2010 til 2017.

Hvers vegna stendur þá þessi þingmaður hér og heldur því fullum fetum fram að þessi hópur hafi algerlega setið eftir? Tölurnar sýna allt annað,“ sagði Bjarni þegar hann svaraði fyrirspurn þingmanns Miðflokksins.

Samkvæmt ÖBÍ væri mjög gleðilegt ef ráðherra færi rétt með staðreyndir. „Þá væri hver og einn örorkulífeyrisþegi með lauslega áætlað um 700 þúsund krónur á mánuði til grunnframfærslu. Það segir sig sjálft að margir yrðu ánægðir með að búa í þessari veröld fjármálaráðherra,“ kemur fram á vefsíðu ÖBÍ.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/​Hari

Staðreyndin sé hins vegar sú að örorkulífeyrisgreiðslur flestra öryrkja séu langt undir 300 þúsund krónum á mánuði, fyrir skatt. Einungis 29% örorkulífeyrisþega fái 300 þúsund króna grunnframfærslu á mánuði sem náðst hafi fram með gríðarlegum þrýsting á stjórnvöld við gerð fjárlaga ársins. Sjö af hverjum tíu sitji því enn úti í kuldanum.

Bent er á í umsögn ÖBÍ við fjárlagafrumvarp næsta árs að kaupmáttur öryrkja hafi nær ekkert aukist á því tímabili sem ráðherra talar um.

Raunar hefur hann verið neikvæður megnið af tímabilinu, þar sem umrædd kaupmáttaraukning síðustu ára hefur ekki náð til örorkulífeyrisþega. Staðreyndin er sú að á árunum 2010 til 2017 hækkaði óskertur lífeyrir einungis um 74.383 kr. samanlagt á mánuði á meðan þingfararkaup hækkaði um 581.190 kr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert