Dreifðu límmiðum á höfuðborgarsvæðinu

Ungir jafnaðarmenn fóru um höfuðborgarsvæðið í gær og dreifðu límmiðum með jákvæðum skilaboðum í garð flóttafólks og hælisleitenda sem vilja setjast að hér á landi. Er þessi gjörningur andspyrna við öfl sem hafa upp á síðkastið dreift hatursáróðri gegn þessum viðkvæmu hópum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, segir í tilkynningu.

„Ungir jafnaðarmenn munu ekki sitja hjá og láta það líðast að öfgahópar gangi um götur okkar og dreifi hatursorðræðu í garð viðkvæmra hópa í samfélaginu,“ segir Nikólína Hildur Sveinsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, í fréttatilkynningu.

Ungir jafnaðarmenn telja að land og þjóð geti opnað faðminn fyrir mun fleira fólki í bágri stöðu en gert er nú. Aldrei hefur fleira fólk verið á flótta í heiminum, en nú eru um 65 milljónir manna á flótta frá heimkynnum sínum. Hér á Íslandi höfum við bæði pláss og fjármuni til að veita fleira fólki öruggt skjól, segir í tilkynningunni.

„Þá gagnrýna Ungir jafnaðarmenn harðlega ómannúðlega stefnu stjórnvalda í málefnum flóttafólks og hælisleitenda. „Ríkisstjórnin, með Sigríði Andersen dómsmálaráðherra í broddi fylkingar, rekur stálhnefastefnu gagnvart hælisleitendum, segir Nikólína. „Hún lýsir sér í því að fólk í mjög viðkvæmri stöðu er miskunnarlaust sent úr landi. Gildir þá einu hvort fólk sé með börn og ljóst er að íslensk stjórnvöld hafa ítrekað orðið uppvís að því að brjóta gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ segir Nikólína jafnframt í fréttatilkynningu.

Formaður Ungra jafnaðarmanna, Nikólína Hildur Sveinsdóttir.
Formaður Ungra jafnaðarmanna, Nikólína Hildur Sveinsdóttir. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert