Uppsögnin „óverðskulduð og meiðandi“

Bjarni Már Júlíusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ON.
Bjarni Már Júlíusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ON. Ljósmynd/Aðsend

Bjarni Már Júlíusson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, segir það mikinn létti að skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar liggi nú fyrir og staðfesti að uppsögn Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, for­stöðumanni ein­stak­lings­markaðar Orku nátt­úr­unn­ar, var réttmæt.

Bjarna Má var sagt upp störfum vegna óviðeigandi hegðunar gagnvart undirmönnum sínum, skömmu eftir að Áslaug Thelma var rekin, en hún birti færslu á Face­book stuttu eft­ir upp­sögn­ina þar sem hún full­yrti að uppsögn hennar tengdist kvörtunum hennar und­an hegðun Bjarna Más.

Í niðurstöðu úttektarinnar sem kynnt var í dag kemur einnig fram að uppsögn Bjarna Más var réttmæt. Í tilkynningu sem Bjarni Már hefur sent frá sér segir hann að uppsögnin hafi verið fyrirvaralaus og bæði óverðskulduð og meiðandi og „til hennar gripið í skyndi án þess að mér væri gefinn kostur á að útskýra mitt mál.“

Bjarni segir það hafa verið ömurlega reynslu fyrir sig og sína fjölskyldu að fylgjast með hvernig vegið var að mannorði hans. „Ég vona að með niðurstöðum úttektar Innri endurskoðunar linni atlögum að mannorði mínu og óhróðri um minn fyrrverandi vinnustað,“ segir Bjarni.

Yfirlýsing Bjarna Más í heild sinni er svohljóðandi: 

Það er mér léttir að skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar liggur nú fyrir og staðfestir að uppsögn starfsmanns ON sem mestur styrr hefur staðið um var réttmæt og byggði á faglegu mati. Þá er það ein af niðurstöðum skýrslunnar að ásakanir um mismunun á grundvelli kynferðis og um kynferðislegt áreiti í samskiptum mínum við samstarfsfólk eiga ekki við nein rök að styðjast.

Fyrirvaralaus uppsögn mín úr starfi framkvæmdastjóra ON var hins vegar að mínu mati bæði óverðskulduð og meiðandi og til hennar gripið í skyndi án þess að mér væri gefinn kostur á að útskýra mitt mál. Það fundust mér kaldar kveðjur eftir 6 ára farsæl störf í þágu OR/Orku náttúrunnar.

Það hefur verið ömurleg reynsla fyrir mig og fjölskyldu mína að fylgjast með hvernig vegið var að mannorði mínu með vandlega útfærðum spuna, sem dreift var á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við einhliða og óstaðfesta frásögn af málsatvikum.

Ég vona að með niðurstöðum úttektar Innri endurskoðunar linni atlögum að mannorði mínu og óhróðri um minn fyrrverandi vinnustað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert