17 ára á 140 km hraða

Frá Reykjanesbraut.
Frá Reykjanesbraut. mbl.is/Árni Sæberg

Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á tæplega 140 km/klst. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Er ökumaðurinn sautján ára gamall og var forráðamönnum hans gert viðvart um hraðaksturinn.

Þá hafa fáeinir ökumenn verið teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- eða ölvunarakstur og reyndist einn þeirra vera sviptur ökuréttindum. Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið í umdæminu á síðustu dögum en þau voru öll minni háttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert