Fjögurra ára beindi geisla að umferðinni

mbl.is/Kristinn Magnússon

Sterkum grænum geisla var beint að umferð í Reykjanesbæ um helgina. Geislanum var meðal annars beint að bifreið lögreglumanns sem var á ferðinni og lék enginn vafi á hvaðan geislinn kom að sögn lögreglu.

Lögreglumenn ræddu við húsráðendur í viðkomandi húsi og kom þá í ljós að fjögurra ára gamall sonur þeirra hafði verið að leika sér með leiserbendil í glugganum um kvöldið.

Fólkinu var tjáð að styrkur bendilsins væri það mikill að geislinn gæti beinlínis verið hættulegur. Fólkið bað lögreglu að taka hann og farga honum, að því er lögreglan segir frá.

Lögreglan á Suðurnesjum ítrekar varnaðarorð sín vegna þeirrar hættu sem skapast getur ef leisergeislum er beint að umferð á landi eða í lofti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert