Fresti sjóböðum og fjöruferðum

Frá Arnarnesvogi.
Frá Arnarnesvogi. Gísli Sigurðsson

Vegna viðhalds á dælustöð við Arnarnesvog á morgun, þar sem sett verður á yfirfall á meðan, er ekki mælst til þess að fólk stundi sjóböð eða fjöruferðir við Arnarnesvog fram yfir helgi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Garðbæ.

Var ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis að setja stöðina á yfirfall, en unnið er að hreinsun á þrýstilögn frá dælustöðinni.

Gert er ráð fyrir að viðhald standi yfir frá miðvikudagsmorgni 21.nóvember fram á föstudag 23. nóvember en tilkynnt verður um það á vef Garðabæjar þegar verkinu er lokið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert