Friða þyrfti stór svæði fyrir netum

Landselir flatmaga í fjöru.
Landselir flatmaga í fjöru.

Ef ætlunin er að fjölga í landselsstofninum þá er ekki önnur leið en að friða stór svæði fyrir grásleppunetum og koma í veg fyrir tilefnislaust dráp sela við ósa laxveiðiáa, segir meðal annars í frétt frá aðalfundi Samtaka selabænda.

Í fréttinni segir að bændur eigi lítinn sem engan þátt í þeirri fækkun sela við landið, sem hafi orðið til þess að Náttúrufræðistofnun hafi lagt til að landselur verði settur á válista. Fækkunin eigi sér þær ástæður að 16. ágúst 1979 setti sjávarútvegsráðherra, að frumkvæði fisksölufyrirtækja á fót svokallaða hringormanefnd, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Þessari nefnd var sett það hlutverk að útrýma sel vegna þess að hann er millihýsill á hringormi. Var í þessu skyni greitt fyrir hvern drepinn sel og það mönnum þó þeir ættu hvergi rétt til veiða né hefðu leyfi til slíks. Fóru þá til veiða allmargir veiðiþjófar, óspart hvattir til óhæfunnar. Enda greiddi hringormanefnd fyrir og skeytti hvorki um skömm né heiður og lítt um hvar veitt var. Að lokum tókst að mestu að stöðva óhæfuna en þá var stærri bátum veitt leyfi til grásleppuveiða.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert