Handtekinn fyrir að reykja á salerni

Flugvél WOW air.
Flugvél WOW air. mbl.is/Eggert

Karlmaður sem var farþegi í flugvél WOW air frá Brussel var handtekinn við komuna á Keflavíkurflugvöll í dag.

Að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa WOW air, hafði maðurinn verið að reykja sígarettu inni á salerni aftast í vélinni en slíkt er stranglega bannað.

Aðspurð segir hún mjög sjaldgæft að atvik sem þessi komi upp og man hún í fljótu bragði ekki eftir slíku hjá flugfélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert