Ísland í aðalhlutverki í París

Katrín Jakobsdóttir á ráðstefnunni.
Katrín Jakobsdóttir á ráðstefnunni. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, sóttu ráðstefnuna Global Positive Forum í París í dag.

Ísland var í aðalhlutverki á ráðstefnunni sem var haldin í tengslum við útgáfu á Positive Economy Index fyrir árið 2018 en staðallinn mælir árangur ríkja með tilliti til fleiri þátta en hagstærða, m.a. trausts í samfélögum, orkunotkunar, menntastefnu, frelsi fjölmiðla. Að þessu sinni er Ísland í 2. sæti listans, einu stigi á eftir Noregi en í fyrra deildu löndin tvö efsta sætinu, að því er kemur fram í tilkynningu.

Sérstök áhersla var lögð á Ísland á ráðstefnunni. Ráðherrarnir fluttu ávörp og tóku þátt í umræðum þar sem þeir svöruðu spurningum úr sal.

Í ávarpi forsætisráðherra kom fram að heimurinn stæði frammi fyrir stórum áskorunum; loftslagsmálum, tæknibreytingum og breyttri aldurssamsetningu þjóða og að ríki heims verði að bregðast við á þann hátt að þau tryggi jöfnuð, sjálfbærni og lýðræði.

Fjármála- og efnahagsráðherra talaði um helstu ástæður þess að Ísland hefði náð miklum árangri á Positive Economy Index, einkum að því er varðar þáttinn ósérhlífni á milli kynslóða (e. altruism between generations).

Umhverfis- og auðlindaráðherra ræddi um samhæfingu í stefnumótun milli mismunandi þátta umhverfismála og mikilvægi þess að finna lausnir sem geta tekið á fleiri en einum þætti í einu, þannig að ná megi árangri á mörgum sviðum í einu.

Positive Economy Index-mælikvarðinn var fyrst gefinn út árið 2013 og hefur Ísland frá upphafi komið vel út á listanum og á síðustu tveimur árum verið í efstu sætum hans. Mælikvarðinn snýst ekki síst um efnahagsstöðu og -stefnu ríkja, samfélagsleg gildi og hve mikilvægt er að snúa frá skammtímahugsun til langtímahugsunar, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert