Óvenjuleg talstöðvarskilyrði í dag

Skilyrðin hafa verið óvenjuleg í dag.
Skilyrðin hafa verið óvenjuleg í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur glímt við afar óvenjuleg talstöðvarskilyrði í dag vegna háþrýstisvæðis sem liggur frá Noregi til Íslands. Skilyrðin valda því að stjórnstöðin nemur fjarskipti frá Englandi, Noregi og Norðursjó sem alla jafna ættu ekki að drífa nema 30-40 sjómílur.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Gæslunnar.

Heita tungan sem liggur frá Noregi gerir það að verkum að fjarskipti og staðsetningarmerki skipa berast mun lengra að en gengur og gerist á venjulegum degi.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafa stöku sinnum orðið varir við fyrirbærið en oftast í maí og því er þetta ákaflega óvenjulegt á þessum árstíma, að því er segir á síðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert