Eldur í kompu

Bílastæðahúsið er á Bergstaðastræti, rétt við Skólavörðustíg.
Bílastæðahúsið er á Bergstaðastræti, rétt við Skólavörðustíg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um fjögurleytið í nótt vegna elds í kompu bílastæðishúss við Bergstaðastræti þar sem útigangsmenn halda til. Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu reyndist kompan mannlaus en þar hafði verið kveikt í rusli. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert