Teknir í vímu undir stýri

mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann sem er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna um miðnætti í nótt. Hann reyndist einnig án ökuréttinda og með lítilræði af ætluðum fíkniefnum á sér. Maðurinn er vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins. 

Um svipað leyti var annar ökumaður stöðvaður fyrir akstur undir áhrifum áfengis en hann var látinn laus að lokinni blóðtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert