Sögufrægt hús endurbyggt

Iðnaðarmenn eru byrjaðir að vinna að endurbótum. Þeirra bíður mikið …
Iðnaðarmenn eru byrjaðir að vinna að endurbótum. Þeirra bíður mikið verk eins og sjá má. Húsið á að verða tilbúið haustið 2019. mbl.is/sisi

Hafnar eru framkvæmdir við endurbætur og stækkun á einu sögufrægasta húsi Reykjavíkur, Hafnarstræti 18. Húsið er að stofni til frá árinu 1795 en byggt hefur verið við það margoft. Síðast voru þarna skemmtistaðurinn D10 (Dúfnahólar 10) og veitingastaðurinn Pizza Royal á jarðhæðinni.

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í september 2017 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 18 við Hafnarstræti. Heimilað var aukið byggingamagn, sem felst í að lyfta núverandi húsi upp um 90 cm, byggja kjallara undir það og nýja viðbyggingu sunnan við húsið, kjallara og tvær hæðir. Húsið er nú 680 fermetrar en verður eftir breytinguna 1.020 fermetrar.

Þá var einnig heimilað að rífa skúra á baklóðinni. Húsið sjálft er friðað, enda talið hafa mikið varðveislugildi vegna menningarsögu og mikilvægis í götumynd. Skúrarnir eru ekki friðaðir.

Suðurhús ehf. er eigandi hússins. Fyrirtækið mun sjálft annast endurbætur og breytingar, en kostnaður við þær er áætlaður um 600 milljónir. Feðginin Páll V. Bjarnason og Ólöf Pálsdóttir, arkitektar hjá P ARK teiknistofu sf., hönnuðu breytingarnar. Ljúka á framkvæmdum við húsið haustið 2019. Margir hafa sýnt því áhuga að leigja í húsinu.

Hús flutt á lóðina árið 1795

Hafnarstræti var heppileg verslunargata. Bryggjur bæjarins voru þar hjá og kolum m.a. skipað þar á land. Í húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur frá 2006 er saga hússins Hafnarstræti 18 rakin. Chr. A. Jacobæus kaupmaður lét flytja hús á lóðina frá Keflavík árið 1795. Húsið sem hann flutti var einlyft og lét hann innrétta sölubúð í öðrum endanum en íbúð í hinum, eins og þá var siður. Jacobæus lét síðan flytja annað hús á lóðina frá Keflavík og reisti það rétt vestan við hitt húsið og var ekki nema örlítið bil á milli þeirra. Hann lét síðan reisa nýtt hús þvert við vesturgaflinn á þessu húsi og fram með Kolasundi. 

Svona mun húsið líta út að breytingum loknum. Ekki er …
Svona mun húsið líta út að breytingum loknum. Ekki er víst að þessi litur verði á húsinu. Það var síðast rautt en þar áður ljósgrænt. Tölvumynd/Onno ehf.

P.C. Knudtzon kaupir húsin árið 1838. Samkvæmt virðingagjörð frá 1844 var verslunarhúsið grindarhús með múrsteinum í grind, klætt listasúð og málað á norður- og austurhliðum, en hinar hliðarnar tvær voru tjargaðar. Borðaþak var á húsinu. Auk verslunarhússins var pakkhús á lóðinni, Norðurpakkhúsið. Fyrir sunnan var salt- og kolageymsla. Sunnar á lóðinni var Suðurpakkhúsið og íbúðarhús frá 1818.

Martin Smith kaupir árið 1852 búðina og Norðurpakkhúsið ásamt kola- og saltgeymsluhúsi sunnan við pakkhúsið. Íbúðarhúsið og Suðurpakkhúsið var selt Sigurði Melsted kennara 1854. Smith lét sameina sölubúðina og geymsluhúsið og setja síðan sameiginlegt þak á öll þrjú húsin með kvistum. Smith reif gamla kolageymsluhúsið sunnan við búðina árið 1867 og byggði nýtt í staðinn. Árið 1891 eignaðist B. Muus og Co. húsin og var þá verslunin kölluð Nýhöfn. Ditlev Thomsen eignaðist húsið um aldamótin og lét hann endurbæta það árið 1904 og var það þá járnklætt.

Breytt í tímanna rás

Húsinu hefur verið breytt í tímanna rás. Gluggar á neðri hæð hafa verið stækkaðir og dyrum breytt. Árið 1924 var sett á það mansard-þak og þakhæð hússins breytt og hún hækkuð. Árið 1950 var sett viðarklæðning á neðri hæð hússins og gluggum breytt. Húsinu var enn breytt árið 1984 en þá var settur inngangur og gluggar á austurgafl hússins.

Minjastofnun Íslands heimilaði niðurrif skúranna með þeim skilyrðum að fornleifafræðingur hefði eftirlit með jarðraski og kæmu fornleifar í ljós þyrfti að rannsaka þær áður en framkvæmdir héldu áfram.

Nokkrar ástæður eru taldar mæla með hækkun hússins. Það er áberandi lægst í umhverfinu og myndi sóma sér mun betur ef því væri lyft. Hafnarstræti 16 er t.d. nokkuð hærra eða tvær hæðir og ris.

Húsin við austasta hluta Hafnarstrætis hafa flest verið endurnýjuð á undanförnum árum sem og gatan sjálf. Þegar endurbyggingu Hafnarstrætis 18 lýkur á næsta ári verður þetta ein glæsilegasta gata Reykjavíkur.

mbl.is/sisi

Verður ein glæsilegasta gata borgarinnar

Húsið lengst til hægri á myndinni hér fyrir ofan, Hafnarstræti 16, er að stofni til frá árinu 1824. Árið 1880 var það hækkað um eina hæð þannig að það varð tvílyft með miðjukvisti fram að götu eins og fólk þekkir það í dag. Húsið er í dag miðstöð myndlistarmanna. Svarta húsið fjærst, Hafnarstræti 20, var byggt 1977. Það stingur í stúf við önnur hús og væri til mikilla bóta að mála það ljósum litum eins og það var upphaflega. Vinstra megin, á lóðunum Hafnarstræti 17-19, voru gömul og ónýt hús rifin. Þeirra í stað byggði Suðurhús ehf. ný hús af miklum myndarbrag. Þar er m.a. að finna glæsihótel, Reykjavík Konsúlat hótel og veitingastaðinn Gott.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert