Vægi verkgreina sláandi lágt

Frá Barnaþingi í Laugarnesskóla á dögunum. Ein af hverjum 5 …
Frá Barnaþingi í Laugarnesskóla á dögunum. Ein af hverjum 5 mínútum í yngstu bekkjum á að fara í kennslu í list- og verkgreinum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Samtökum iðnaðarins þykir vægi list- og verkgreina í grunnskólum landsins sláandi lágt og vilja ráðast að rótum vandans. Samtökunum þykir margt benda til þess að skortur á hæfu starfsfólki ráði mestu þar um og í einhverjum tilvikum aðstöðuskortur.
„Við viljum ráðast að rótum vandans, enda sýna greiningar að við þurfum að vinna með þetta á grunnstigum menntakerfisins. Þegar við skoðum stöðu þessara greina í grunnskólanum koma sláandi staðreyndir í ljós,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri reksturs Mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum iðnaðarins, og á þar við kennslu í list- og verkgreinum í grunnskólum landsins.

Í viðmiðunarstundaskrám er hlutfallið sem grunnskólum ber að verja til kennslu í téðum greinum ein af hverjum fimm mínútum í yngstu bekkjunum og fer niður í eina af hverjum þrettán mínútum í elstu bekkjunum. Að áliti Ingibjargar Aspar er þetta sláandi lágt hlutfall.

„Ekki nóg með það, þegar rýnt er í stundaskrár grunnskóla kemur í ljós að skólarnir eru í fáum tilvikum að fylgja þessum stundaskrám. Við sjáum að á miðstigi, sem er 5. til 7. bekkur, uppfylla 80% skóla í Reykjavík ekki þessi viðmið. Það er mjög alvarlegt,“ segir hún.

Ingibjörg Ösp segir þetta koma sér illa þegar fyrir liggur að skortur á fólki með iðnmenntun á vinnumarkaði sé mikill, þannig að það hamli jafnvel þróun á starfsemi fyrirtækja.

Svigrúm innan kvótans

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.

Spurð hvað veldur segir Ingibjörg Ösp enga vísindalega könnun liggja til grundvallar en margt bendi þó til þess að skortur á starfsfólki með nauðsynlega færni og þekkingu ráði mestu og í einhverjum tilvikum aðstöðuskortur.
„Það er líka ákveðið vandamál að innan kvótans hafa skólarnir töluvert svigrúm. Það þýðir að hafi skóli hæfan kennara í textílmennt í sínum röðum getur hann gengið langt í að fylla kvótann með því að láta nemendurna hekla. Þannig er þetta auðvitað ekki hugsað; við teljum eðlilegt að vinna þetta á breiddina. List- og verkgreinar eru svo ótrúlega margar og fjölbreyttar.“

Ingibjörg Ösp segir mikilvægt að bæta aðgengi fólks sem hefur sérmenntun á sviði list- eða iðngreina að kennslu. „Eins og staðan er í dag tekur það eitt til tvö ár að öðlast kennsluréttindi, fyrir litla sem enga launahækkun. Það er vitaskuld ekki hvetjandi og alls ekki ásættanlegt. Fyrir vikið er mikilvægt að stytta og einfalda réttindaferlið og breyta regluverkinu með hliðsjón af því,“ segir Ingibjörg Ösp og bætir við að vandinn sé ekki bara bundinn við grunnskólann; þetta eigi líka við á leikskóla- og framhaldsskólastiginu.

Þekkt eru dæmi um að sumir kennarar eigi auðveldara með að vekja áhuga nemenda á einstökum greinum en aðrir. Þetta á alveg eins við um list- og verkgreinar, að dómi Ingibjargar Aspar. „Það eru yfirleitt bestu kennararnir sem hafa hugsjónina, brenna fyrir starfið og ná hópnum með sér. Við heyrum þær sögur en því miður ekki nógu oft,“ segir hún. 

Greinina má lesa í heild sinni í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kom út í gær. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert