4 konur greinst með fágætt mein hér á landi

Ekki er vitað hvort þær konur sem greinst hafa hér …
Ekki er vitað hvort þær konur sem greinst hafa hér á landi voru með púða í brjóstum sínum.

Fjórar konur hér á landi hafa greinst með fágætt eitilfrumukrabbamein sem hugsanlegt er að tengist brjóstapúðum með hrjúfu yfirborði. Ekki er þó vitað hvort konurnar voru með slíka púða í brjóstum sínum. Þetta kemur fram í frétt á vef Krabbameinsfélags Íslands, en fjallað hefur verið um málið í erlendum miðlum í dag.

Púðarnir hafa verið græddir í milljónir kvenna um allan heim, en frönskum skurðlæknum hefur verið ráðlagt að hætta notkun þeirra og nota í staðinn brjóstapúða með sléttu yfirborði. Í frétt The Guardian um málið segir, að að minnsta kosti 615 konur sem hafa verið með púða með hrjúfu yfirborði í brjóstum sínum hafi fengið meinið og að minnsta kosti 16 þeirra hafi látist.

Meinið nefnist anaplastic lar­ge cell lymp­homa eða ALCL en umræðuna um hugsanleg tengsl þess við brjóstapúða má rekja aftur til ársins 1997. Hún styrktist svo árið 2011 þegar yfirvöld, meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum lögðu áherslu á að bæði heilbrigðisstarfsfólk og fólk sem fengi brjóstapúða væri meðvitað um hugsanleg tengsl við krabbameinið, að því er fram kemur á vef Krabbameinsfélagsins.

Auk þeirra fjögurra kvenna sem hafa greinst á Íslandi með ALCL frá árinu 1999, greindust einnig 23 karlar hér á landi með ALCL á árunum 1989-2018.

Franska lyfjastofnunin hyggst boða almenning, heilbrigðisstarfsfólk, rannsakendur og aðra hagsmunaaðila til fundar í byrjun febrúar 2019 þar sem er ætlunin er að fara yfir stöðu þekkingar á hugsanlegum tengslum brjóstapúða við ALCL og gefa álit á málinu. Þar til ályktun af fundinum liggur fyrir mælir franska lyfjastofnunin með því að brjóstapúðar með slétt yfirborð séu notaðir. 

Á vef Krabbameinsfélagsins kemur fram að erfitt sé að meta tengsl milli brjóstapúða og ALCL vegna þess hve krabbameinið er fátítt og skráningum á notkun og tegundum brjóstapúða er ábótavant. Almennt séu um 85-90% allra brjóstapúða með hrjúft yfirborð, en Krabbameinsfélagið hafi ekki getað fengið upplýsingar um hvaða tegund púða sé mest notuð á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert